Stórglæsilest og vandlega hannað parhús í göngufæri við strönd í bænum Los Alcázares í Murcia héraði.
Húsið sem er á tveimur hæðum er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, bjart og rúmgott alrými með eldhúsi og stofu og rúmgóðum svölum. Stór garður er í kringum húsið með sér bílastæði og gefst kaupendum kostur á að bæta við sundlaug sé þess óskað, einnig er möguleiki á að bæta við þaksvölum.
Los Alcázares er mjög vinsæll meðal þeirra sem stunda sjóíþróttir en býður einnig upp á allskyns aðra afþreyingu sem og uppákomur allt árið um kring. Alla nauðsinlega þjónustu er að finna í bænum s.s. heilsugæslu, apótek og matvöruverslanir sem og ótal veitingastaði og bari.
Stutt er að fara á golfvöllinn frá Los Alcázares en í nokkurra mínútna fjarlægð er að finna nokkra af fallegustu golfvöllum Spánar, Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum.
Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.