Þetta fallega raðhús sem er á tveimur hæðum er með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórri og bjartri stofu með arni og fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum. Einnig fylgir 58m2 bílskúr í kjallaranum og mjög rúmgóðar þaksvalir.
Erum með nokkrar lausar eignir í þessum sama kjarna.
Fortuna er hefðbundinn Spænskur bær, staðsettur fyrir utan stórborgina Murcia og er með mikla og skemmtilega sögu og því ótal söfn og sögulegar minjar til að skoða. En Fortuna er hvað þekktastur fyrir hverina og ótal hveralindir sem Rómverjar notuðu hér áður fyrr og hefur þeim verið breytt í heilsulind sem vert er að nýta sér. Bærinn býður einnig upp á alla nauðsynlega þjónustu sem og ótal afþreyingu og ekki má gleyma skemmtilegu uppákomunum sem eru reglulega yfir árið og því nóg um að vera.
Costa Cálida er kjörinn staður til að njóta einstakrar paradísar með öllum þeim menningar- og náttúruauð sem Murcia-héraðið hefur upp á að bjóða. Það er líka heimsklassa paradís fyrir íþróttaunnendur: Sjóíþróttir eða óendanlegt úrval af afþreyingu eins og sund, siglingar eða vatnsskíði, sem og landíþróttir, með valkosti sem eru allt frá tennis til gönguferða eða golfs.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.