*
*
Stórglæsilegt einbýli við golfvöll

Stórglæsilegt einbýli við golfvöll

Kr 47.328.491314.900€
Ref: V328
Stórglæsilegt einbýli við golfvöll - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 109,23 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 221 m² Stærð lóðar
  • icon Val
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Hágæða einbýlishús í nýjum kjarna á stórkostlegum stað en þær eru staðsettar við hinn glæsilega 18 holu Vistabella Golfvöll. Svæðið í kring er sannkölluð paradís þar sem öll nauðsinleg þjónusta er innan seilingar, en þar er að finna apótek, matvöruverslanir, veitingahús og bari. Einnig er næga afþreyingu að finna á svæðinu, aðgangur að paddle tennisvöllum og bocce völlum stendur einnig íbúum til boða sem og golfkennsla fyrir þá sem vilja.

Þetta glæsilega hús er á tveim hæðum eða 109,23 m2 að stærð með tveim hjónasvítum með sér baðherbergi á efri hæð og auka svefnherbergi á neðri hæð sem og auka baðherbergi. Stofa og eldhús eru svo í einu stóru alrími með mjög góðu flæði og góða tengingu við útisvæði en þar er stór pallur og bílastæði innan lóðar. Fyrir þá sem vilja er einnig hægt að bæta við sundlaug sem og þaksvölum. Húsið er staðsett inn í lokuðu hverfi og er þar sólahrings öryggisgæsla.

Erum með mikið úrval annarra eigna til sölu í þessu magnaða hverfi.

Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.  

Auk allrar þeirra þjónustu sem Vistabella Golf bíður uppá er stutt að fara til að bæta við flóruna en Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn Vistabella Golf, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um þessa eign.

  • Sundlaug:
    Val
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til austurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    109,23 m²
  • Stærð lóðar:
    221 m²
  • Garður:
    80,37 m²
  • Stærð verandar:
    31,4 m²
  • Byggingarár:
    2023
  • Geymsla
  • Sólarorka
  • Verönd
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:20 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.