*
*
Draumeign golfarans á Vistabella Golf

Draumeign golfarans á Vistabella Golf

Kr 50.888.119339.000€
Ref: V426
Draumeign golfarans á Vistabella Golf - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 118,67 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 174,06 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • A Orku vottorð
Lýsing eignar:

Dreymir þig um að búa á Spáni í fallegu húsi og í göngufæri við golfvöll?

Þá er þetta eignin fyrir þig. Glæsilegt einbýlishús við hinn glæsilega 18 holu Vistabella Golfvöll. Svæðið í kring er sannkölluð paradís þar sem öll nauðsynleg þjónusta er innan seilingar, en þar er að finna apótek, matvöruverslanir, veitingahús og bari. Einnig er næga afþreyingu að finna á svæðinu, aðgangur að padel tennisvöllum og bocce völlum stendur einnig íbúum til boða sem og golfkennsla fyrir þá sem vilja.

Húsið er 118.67m2 á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum með hita í gólfi. Bjart og rúmgott alrými á neðri hæð með stofu, borðstofu og fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum en þaðan er einnig hægt að ganga út í glæsilegan garð með sundlaug og útisturtu. Fyrir þá sem þess óska er einnig hægt að bæta við þaksvölum. Húsið er staðsett inn í lokuðu hverfi og er þar sólahrings öryggisgæsla.

Erum með mikið úrval annarra eigna til sölu í þessu magnaða hverfi.

Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.  

Auk allrar þeirra þjónustu sem Vistabella Golf bíður uppá er stutt að fara til að bæta við flóruna en Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila á heimavellinum þínum Vistabella Golf, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um þessa eign.

 

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur - Náttúra
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    118,67 m²
  • Stærð lóðar:
    174,06 m²
  • Garður:
    119,89 m²
  • Stærð verandar:
    20,7 m²
  • Byggingarár:
    2023
  • Hiti í gólfi
  • Sólarorka
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:20 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.