*
*
Íbúð í Villamartin

Íbúð í Villamartin

Kr 25.401.280Húsið er Selt
Ref: A036
Íbúð í Villamartin  - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 70 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Þessari glæsilegu 2 svefnherbergja, 2 baðherbergja 70m2 íbúð, fylgir jafnframt verönd og einka bílastæði.  Hún er staðsett í yndislegu hverfi, og í íbúðarþyrpingu þar sem hugað er að hverju smáatriði, þar sem sameiginlegt sundlaugasvæði og fagurlega gróinn garður eru sannkölluð augnayndi.  Eru líka í boði 3 herbergja íbuðir í sömu blokk. 

Skammt frá er 18 holu golfvöllurinn Villamartin, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagurlitaða páfagaukana kvaka allan ársins hring.   Golfvöllurinn sem að hverfið er jú nefnt eftir er inni í miðri íbúðarbyggð þar sem fagurgrænar golfbrautir og mikilfenglegt skólendi mynda einstakt umhverfi í göngufæri við nærliggjandi íbúðarkjarna og alla almenna þjónustu.  

Stutt er jafnframt að rölta til verslunarmiðstöðvarinnar La Fuente þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og bara, auk apóteks og matvöruverslunarinnar ALDI svo eitthvað sé nefnt, eða innan við 5 mínútur.

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við íbúðabyggð Villamartin hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkura mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til austurs
  • Útsýni:
    Á ekki við
  • Bílastæði:
    Bílskúr
  • Fermetra stærð eignar:
    70 m²
  • Stærð verandar:
    17,65 m²
  • Byggingarár:
    2020
  • Geymsla
  • Öryggiskerfi
  • Miðstöðvarkynding
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:45 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:4 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.