*
*
Flott íbúð skammt frá Villamartin Golf

Flott íbúð skammt frá Villamartin Golf

Kr 39.113.484260.000€
Ref: A724
Flott íbúð skammt frá Villamartin Golf  - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 69 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • B Orku vottorð
Lýsing eignar:

Flott 69m2 íbúð á þriðju hæð með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, með stóru og björtu alrými með eldhúsi og stofu sem labbað er út á 10m2 svalir. Íbúðin kemur einnig með 35m2 stórum þaksvölum með æðislegu útsýni sem er á efstu hæð í byggingunni og er þar hægt að sóla sig allt í 300 daga á ári, frábær aðstaða til dæmis til að grilla yndislega máltið, vaskur með langri borðplötu og nóg pláss fyrir að geyma fylgihlutina fyrir t.d útidótið, strandardótið eða úti fylgihlutina.

Í sameigninni eru frábærar sundlaugar, ein af þeim upphituð á veturna, leikvöllur fyrir þau yngstu og einnig tennisvöllur. 

Í einungis 4 mínútna fjarlægð er 18 holu golfvöllurinn Villamartín, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagur litaða páfagaukana kvaka allan ársins hring.   Golfvöllurinn sem að hverfið er jú nefnt eftir er inni í miðri íbúðarbyggð þar sem fagurgrænar golfbrautir og mikilfenglegt skóglendi mynda einstakt umhverfi í göngufæri við nærliggjandi íbúðarkjarna og alla almenna þjónustu.  

Stutt er jafnframt að rölta til verslunarmiðstöðvarinnar Villamartin Plaza þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og bara, auk matvöruverslunarinnar svo eitthvað sé nefnt, eða innan við 5 mínútur.

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við íbúðabyggð Villamartín hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fínsendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Ósnortin náttúra
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    69 m²
  • Stærð verandar:
    10 m²
  • Stærð þaksvala:
    35 m²
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:10
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:4

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.