*
*
Fallegt einbýlishús í Villamartín

Fallegt einbýlishús í Villamartín

Kr 46.444.772309.000€
Ref: V133
Fallegt einbýlishús í Villamartín - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 84 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 150,58 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Kynningartilboð - heimilistæki og sér sundlaug innifalið í verði!

Hér er um að ræða 84m2 einbýlishús með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 25m2 þaksvölum.  Húsið er staðsett í fallegu íbúðarhverfi, þaðan sem stutt er til allra átta.  Auk þess tilheyrir sameigninni sameiginlegt sundlaugasvæði og gróinn garður sem eru sannkölluð augnayndi. 

Bjóðum líka uppá glæsileg parhús í sömu íbúðarþyrpingu.

Skammt er á 18 holu golfvöllinn Villamartín, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagurlitaða páfagaukana kvaka allan ársins hring. 

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við, og sums staðar í gegnum, íbúðabyggð Villamartin hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru, en jafnframt er stutt að fara til annara hverfa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum, eða á farartæki s.s. í hverfið Los Altos, Los Balcones, La Florida og Playa Flamenca.  En það má segja að ekki sé meira en 10 mín létt labb til allra þessara hverfa.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans

 

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

 

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suð-vesturs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkastæði
  • Fermetra stærð eignar:
    84 m²
  • Stærð lóðar:
    150,58 m²
  • Stærð verandar:
    20,40 m²
  • Stærð þaksvala:
    25 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Öryggiskerfi
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:8
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.