*
*
Björt og falleg íbúð á einstöku verði

Björt og falleg íbúð á einstöku verði

Kr 33.325.162222.000€
Ref: A084
Björt og falleg íbúð á einstöku verði - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 72,95 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Tilbúin til afhendingar! 

Þessari glæsilegu 2 svefnherbergja, 2 baðherbergja og 72,95m2 íbúð, fylgir jafnframt rúmgóð verönd.  Hún er staðsett í einstöku hverfi, og í aflokaðri íbúðarþyrpingu þar sem hugað er að hverju smáatriði, með sameiginlegu sundlauga og garðsvæði.  Í sama íbúðarkjarna eru í boði glæsilegar íbúðir með garði og íbúðir með þaksvölum og glæsilegu útsýni.

íbúðin skilast fullbúin með húsgögnum og heimilistækjum.

Í einungis 4 mínútna fjarlægð er 18 holu golfvöllurinn Villamartín, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagur litaða páfagaukana kvarka allan ársins hring.   Golfvöllurinn sem að hverfið er jú nefnt eftir er inni í miðri íbúðarbyggð þar sem fagurgrænar golfbrautir og mikilfenglegt skólendi mynda einstakt umhverfi í göngufæri við nærliggjandi íbúðarkjarna og alla almenna þjónustu.  

Stutt er jafnframt að rölta til verslunarmiðstöðvarinnar Villamartin Plaza þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og bara, auk matvöruverslunarinnar svo eitthvað sé nefnt, eða innan við 5 mínútur.

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við íbúðabyggð Villamartín hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til austurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæði í byggðarkjarna
  • Fermetra stærð eignar:
    72,95 m²
  • Stærð verandar:
    11,9 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Húsgögn fylgja með
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:4 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.