*
*
Bjartar og fallegar sérhæðir með þaksvölum

Bjartar og fallegar sérhæðir með þaksvölum

Kr 35.323.362235.005€
Ref: B495
Bjartar og fallegar sérhæðir með þaksvölum - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 60 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Glæsilegar sérhæðir í Villamartín á Costa Blanca ströndinni. Íbúðin er 60m2 með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Stórar þaksvalir fylgja einnig sem og sér bílastæði og aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði með sundlaug og fallegum grænum svæðum þar sem kjörið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári. Einnig stendur kaupendum til boða að fá íbúðina afhenta með heimilistækjum og húsgögnum gegn vægu gjaldi.

Bjóðum einnig upp á íbúðir með 3 svefnherbergjum í þessari sömu byggingu.

Ekki missa af þessu frábæra tækifæri!

Skammt frá er 18 holu golfvöllurinn Villamartin, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagurlitaða páfagaukana kvaka allan ársins hring. Golfvöllurinn sem að hverfið er jú nefnt eftir er inni í miðri íbúðarbyggð þar sem fagur grænar golfbrautir og mikilfenglegt skólendi mynda einstakt umhverfi í göngufæri við nærliggjandi íbúðarkjarna og alla almenna þjónustu.  

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við íbúðabyggð Villamartin hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkastæði
  • Fermetra stærð eignar:
    60 m²
  • Stærð verandar:
    9,65 m²
  • Stærð þaksvala:
    59,39 m²
  • Byggingarár:
    2023
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:9 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:12 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.