Þetta glæsilega einbýlishús er staðsett á mjög vinsælu svæði á Costa Blanca strandlengjunni, eða í hverfinu Villamartín þaðan sem stutt er í alla þjónustu og hinna glæsilegu Zenia Boulevard verslunarmiðstöð. Húsið sem er 111,98m2 er á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og stórum þaksvölum eða 104m2 með glæsilegu útsýni. Húsið stendur á fallegri og rúmgóðri lóð með sérsundlaug, einnig fylgir eigninni sér bílastæði.
Einnig fylgja gæðaheimilistæki með húsinu.
Erum með mikið úrval einbýlishúsa á þessum sama stað.
Einungis 5 mínútna keyrsla er á 18 holu golfvöllinn Villamartín, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagur litaða páfagaukana kvaka allan ársins hring.
Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki nálægt húsinu, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.
Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!