*
*
3 svefnherbergja einbýlishús á frábæru verði

3 svefnherbergja einbýlishús á frábæru verði

Kr 35.321.695235.000€
Ref: V367
3 svefnherbergja einbýlishús á frábæru verði - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 83,95 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Þessi glæsieign er staðsett í því vinsæla hverfi Villamartín á Costa Blanca ströndinni, þar sem öll nauðsynleg þjónusta er innan seilingar s.s.  matvöruverslanir, apótek, heilsugæsla, skóli, veitingastaðir og margt fleira og hentar því staðsetningin mjög vel hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.

Húsið er 83,95m2 að stærð með 3 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum, rúmgóðum svölum á efri hæð, stórum sér garði á neðri hæð. Að auki fylgir aðgangur að glæstri sameiginlegri sundlaug

Húsið er tilbúið til afhendingar og fylgja heimilistæki, loftkæling og öryggiskerfi með.

Einungis 5 mínútna keyrsla er á 18 holu golfvöllinn Villamartín, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagur litaða páfagaukana kvaka allan ársins hring.  

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki nálægt húsinu, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. 

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæði í byggðarkjarna
  • Fermetra stærð eignar:
    83,95 m²
  • Garður:
    58 m²
  • Stærð verandar:
    17,62 m²
  • Öryggiskerfi
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:8
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.