*
*
Þakíbúð - penthouse í Villamartin

Þakíbúð - penthouse í Villamartin

Kr 38.074.298Húsið er Selt
Ref: P035
Þakíbúð - penthouse í Villamartin  - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 83,7 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Tilbúin til afhendingar!

Þessari glæsilegu 3 svefnherbergja, 2 baðherbergja og tæplega 84m2 þakíbúð, fylgir jafnframt einkabílastæði og 97,5 m2 sólarþak þaðan sem hægt er að njóta óviðjafnanlegs útsýnis. Eignin er staðsett í yndislegu hverfi, og í íbúðarþyrpingu þar sem hugað er að hverju smáatriði, þar sem sameiginlegt sundlaugasvæði og fagurlega gróinn garður eru sannkölluð augnayndi.

Skammt frá er 18 holu golfvöllurinn Villamartin, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallegan útsýnisbar og njóta þess að hlusta á fagurlitaða páfagaukana kvaka allan ársins hring.   Golfvöllurinn sem að hverfið er jú nefnt eftir er inni í miðri íbúðarbyggð þar sem fagurgrænar golfbrautir og mikilfenglegt skólendi mynda einstakt umhverfi í göngufæri við nærliggjandi íbúðarkjarna og alla almenna þjónustu.  

Stutt er jafnframt að rölta til verslunarmiðstöðvarinnar La Fuente þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og bara, auk apóteks og matvöruverslunarinnar ALDI svo eitthvað sé nefnt, eða innan við 5 mínútur.

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem liggur sem landamerki upp við íbúðabyggð Villamartin hverfisins, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkura mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til austurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur
  • Bílastæði:
    Bílskúr
  • Fermetra stærð eignar:
    83,7 m²
  • Stærð verandar:
    97,5 m²
  • Byggingarár:
    2020
  • Geymsla
  • Öryggiskerfi
  • Miðstöðvarkynding
  • Bílskúr
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:45 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:4 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.