*
*
Frábærlega staðsett raðhús með garði - stutt frá strönd

Frábærlega staðsett raðhús með garði - stutt frá strönd

Kr 42.869.060285.000€
Ref: B297
Frábærlega staðsett raðhús með garði - stutt frá strönd - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 98.1 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Stórkostlegar íbúðir í nýjum afgirtum íbúðarkjarna aðeins 250 metrum frá ströndinni í líflegu borginni Torrevieja og öll nauðsnleg þjónusta og afþreying s.s. matvöruverslanir, veitingahús, barir, bankar og apótek í göngufæri, að auki er ekki nema 10 min keyrsla í verslunarmiðstövarnar Habaneras og Zenia Boulevard.

Íbúðin sem um ræðir er á jarðhæð og er með hjólastólaaðgengi, hún er 98.1m2 að stærð með glæsilegri hjónasvítu en hún er með sér baðherbergi með hita í gólfum og fataherbergi, að auki eru annað rúmgott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp og baðherbergi með hita í gólfi. Sér 95,66m2 garður fylgir íbúðinni og góð verönd, einnig fylgir bílastæði í bílakjallara og aðgangur að stórglæsilegum sameiginlegum garði með 3 sundlaugum og aðstöðu til líkamsræktar og leiksvæði fyrir börn.

Einnig erum við með íbúðir með 3 svefnherbergjum til sölu í þesum sama kjarna.

Stutt er jafnframt að rölta til hafnarinnar í Torrevieja, en þar má meðal annars finna glæsilega veitingastaði, tívoli, báta, sæþotu leigur og kafbátasafnið í Torrevieja.  Ekki sakar að tylla sér niður á rúmgóða verönd eins hinna fjölmörgu veitingastaða eða bara sem eru við höfnina og njóta þar síns uppáhalds kokteils í góðum félagsskap - með óhindrað útsýni til sjávar þar sem millt veðurlagið gerir alla daga að góðum dögum.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum frægu salt vötnum Torrevieja/La Mata, heimili hinna bleiku flamenco fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Auk þess er ekki úr vegi að rölta á björtu síðdegi meðfram Playa les Ortigues ströndinni sem liggur milli Torrevieja og strandbæjarins Guardamar, en þessi strönd er verndað náttúrusvæði þar sem hinn einstaklega hlýja og ósnortna náttúra Miðjarðarhafsins fær að njóta sín.  Strandlengja þar sem sandhólar, náttúrulegur gróður og dýraríki ráða ríkjum, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suð-austurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    98.1 m²
  • Garður:
    95,26 m²
  • Stærð verandar:
    25 m²
  • Byggingarár:
    2025
  • Hiti í gólfi
  • Hleðlustöð fyrir rafbíla
  • Öryggiskerfi
  • Lyfta
  • Verönd
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:2
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:2
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:15

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.