Einbýlishús í fallegum nýjum kjarna í Torrevieja
Kr 71.832.000Húsið er Selt
-
3 Svefnherbergi
-
3 Baðherbergi
-
261 m² Fermetra stærð eignar
-
m² Stærð lóðar
-
Já
- Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:
Fallegt einbýlishús í glænýjum fallegum kjarna rétt hjá vinsæla bleika saltvatninu í Torrevieja.
Húsið er 261m2 með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, bjart og fallegt alrými með eldhúsi og fallegri stofu sem labbað er út í 242 m2 garð með einkasundlaug og einnig er 53m2 þaksvalir með æðislegu útsýni.
Aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði fylgir einnig, sem vaktaður er með myndavélakerfi, en í honum er að finna sundlaug, líkamsrækt, sameiginlega vinnuaðstöðu, tennis,fótbolta og körfuboltavöll, leiksvæði fyrir þau yngstu, SPA og einnig snyrtistofu.
Erum með mikið úrval eigna í þessum sama íbúðarkjarna
Þessi íbúðarkjarni er staðsettur rétt við „bleika“ saltvatnið í skemmtilegu og líflegu borginni Torrevieja. Fyrir náttúru unnendur er vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum áður nefndu salt vötnum, sem eru í göngufæri frá þessari glæsilegu eign, heimili hinna bleiku flamingo fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, 2 verslunarmiðstöðvar, frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Þessi eign er frábærlega staðsett til, hvort sem er, langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!
-
Fermetra stærð eignar:
261 m²
-
Garður:
242 m²
-
Stærð þaksvala:
53 m²
-
Byggingarár:
2025
- Húsgögn fylgja með
- Loftkæling