*
*
Efri sérhæð með glæsilegu útsýni

Efri sérhæð með glæsilegu útsýni

Kr 38.807.781258.000€
Ref: B554
Efri sérhæð með glæsilegu útsýni - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 75,27 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Björt og nútímaleg sér hæð með útsýni yfir Laguna Rosa eða bleika saltvatnið í Torrevieja.

Þessi glæsilega íbúð er með 2 rúmgóðum svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, borðstofu og stofu, þaðan sem útgengt er út á rúmgóðar svalir. Einnig fylgja stórar þaksvalir með stórglæsilegu útsýni yfir bleika saltvatnið þar sem möguleiki er að setja upp nuddpott.

Aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði fylgir einnig, sem vaktaður er með myndavélakerfi, en í honum er að finna barnalaug og aðra stærri sundlaug, líkamsræktar aðstöðu utandyra og margt fleira. Sér bílastæði í bílakjallara fylgir einnig íbúðinni.

Erum með mikið úrval eigna í þessum sama íbúðarkjarna 

Þessi íbúðarkjarni er staðsettur rétt við „bleika“ saltvatnið í skemmtilegu og líflegu borginni Torrevieja. Fyrir náttúru unnendur er vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum áður nefndu salt vötnum, sem eru í göngufæri frá þessari glæsilegu eign, heimili hinna bleiku flamingo fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis.  Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, 2 verslunarmiðstöðvar, frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.

Þessi eign er frábærlega staðsett til, hvort sem er, langtíma eða skammtíma dvalar.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    75,27 m²
  • Stærð verandar:
    18,5 m²
  • Stærð þaksvala:
    73,4 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Hleðlustöð fyrir rafbíla
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:10
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:10

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.