*
*
Efri hæð í fallegu raðhúsi - stutt frá strönd

Efri hæð í fallegu raðhúsi - stutt frá strönd

Kr 52.606.907350.000€
Ref: B298
Efri hæð í fallegu raðhúsi - stutt frá strönd - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 102,76 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Stórkostlegar íbúðir í nýjum afgirtum íbúðarkjarna aðeins 250 metrum frá ströndinni í líflegu borginni Torrevieja og öll nauðsynleg þjónusta og afþreying s.s. matvöruverslanir, veitingahús, barir, bankar og apótek í göngufæri, að auki er ekki nema 10 mín keyrsla í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og Zenia Boulevard.

Þessi glæsilega íbúð er á efri hæð í nýju raðhúsi, hún er 102,76m2 að stærð með glæsilegri hjónasvítu en hún er með sér baðherbergi með hita í gólfum og fataherbergi, að auki er annað rúmgott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp og baðherbergi með hita í gólfi. Mjög stórar þaksvalir fylgja einnig íbúðinni þar sem útsýnið svíkur engan, sem og góðar svalir, einnig fylgir bílastæði í bílakjallara og aðgangur að stórglæsilegum sameiginlegum garði með 3 sundlaugum og aðstöðu til líkamsræktar og leiksvæði fyrir börn.

Erum einnig með 3 svefnherbergja íbúðir á efri hæð í þessum glæsilega nýja íbúðarkjarna.

Stutt er jafnframt að rölta til hafnarinnar í Torrevieja, en þar má meðal annars finna glæsilega veitingastaði, tívoli, báta, sæþotu leigur og kafbátasafnið í Torrevieja.  Ekki sakar að tylla sér niður á rúmgóða verönd eins hinna fjölmörgu veitingastaða eða bara sem eru við höfnina og njóta þar síns uppáhalds kokteils í góðum félagsskap - með óhindrað útsýni til sjávar þar sem milt veðurlagið gerir alla daga að góðum dögum.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum frægu salt vötnum Torrevieja/La Mata, heimili hinna bleiku flamenco fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Auk þess er ekki úr vegi að rölta á björtu síðdegi meðfram Playa les Ortigues ströndinni sem liggur milli Torrevieja og strandbæjarins Guardamar, en þessi strönd er verndað náttúrusvæði þar sem hinn einstaklega hlýja og ósnortna náttúra Miðjarðarhafsins fær að njóta sín.  Strandlengja þar sem sandhólar, náttúrulegur gróður og dýraríki ráða ríkjum, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

   

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Sjávarútsýni
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    102,76 m²
  • Stærð verandar:
    102,76 m²
  • Stærð þaksvala:
    73,25 m²
  • Byggingarár:
    2025
  • Hiti í gólfi
  • Hleðlustöð fyrir rafbíla
  • Öryggiskerfi
  • Lyfta
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40
  • Fjarlægð frá strönd:2
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:2
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:15

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.