*
*
Þakíbúð íbúð 700 metrum frá strönd

Þakíbúð íbúð 700 metrum frá strönd

Kr 33.730.427225.000€
Ref: P623
Þakíbúð íbúð 700 metrum frá strönd - Perla Investments
  • icon 1 Svefnherbergi
  • icon 1 Baðherbergi
  • icon 47,25 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Nei
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Skemmtilegar nýjar þakíbúðir í miðbæ Torrevieja. Íbúðin sem um ræðir er með 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi með hita í gólfum. Íbúðin er í nýrri íbúðarbyggingu í hjarta Torrevieja. Þaðan er ekki nema um 700 metrar á ströndina og göngu færi í alla nauðsynlega þjónustu, verslanir, veitingahús og bari.

Stórar þaksvalir með flotu útsýni.

Erum einnig með íbúðir með 2 svefnherbergjum í þessari glæsilegu byggingu.

Stutt er jafnframt að rölta til hafnarinnar í Torrevieja, en þar má meðal annars finna glæsilega veitingastaði, tívoli, báta, sæþotu leigur og kafbátasafnið í Torrevieja.  Ekki sakar að tylla sér niður á rúmgóða verönd eins hinna fjölmörgu veitingastaða eða bari sem eru við höfnina og njóta þar síns uppáhalds kokteils í góðum félagsskap - með óhindrað útsýni til sjávar þar sem milt veðurlagið gerir alla daga að góðum dögum.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum frægu salt vötnum Torrevieja/La Mata, heimili hinna bleiku flamingo fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Auk þess er ekki úr vegi að rölta á björtu síðdegi meðfram Playa les Ortigues ströndinni sem liggur milli Torrevieja og strandbæjarins Guardamar, en þessi strönd er verndað náttúrusvæði þar sem hinn einstaklega hlýja og ósnortna náttúra Miðjarðarhafsins fær að njóta sín.  Strandlengja þar sem sandhólar, náttúrulegur gróður og dýraríki ráða ríkjum, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

  • Sundlaug:
    Nei
  • Garður:
    Nei
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Miðbær
  • Bílastæði:
    N/A
  • Fermetra stærð eignar:
    47,25 m²
  • Stærð verandar:
    58,85 m²
  • Byggingarár:
    2025
  • Hiti í gólfi
  • Lyfta
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:3 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:1 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:15 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.