*
*
Vel staðsett parhús á frábæru verði

Vel staðsett parhús á frábæru verði

Kr 24.523.754163.000€
Ref: T440
Vel staðsett parhús á frábæru verði - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 118,75 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Nýstandsett parhús á 3 hæðum rétt fyrir utan líflega bæinn San Miguel de Salinas.

Húsið er tilbúið til afhendingar!

Húsið er 118,75m2 með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt óinnréttuðum kjallara þar sem hægt væri að útbúa auka svefnherbergi, tómstundarherbergi, líkamsræktaraðstöðu eða vínkjallara. Með eigninni kemur einnig fullbúið eldhús með heimilistækjum og rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn í meira en 300 daga á ári. Húsið stendur í sjarmerandi hverfi þar sem aðgangur að sameiginlegri sundlaug fylgir með.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

 

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    N/A
  • Fermetra stærð eignar:
    118,75 m²
  • Garður:
    45 m²
  • Stærð verandar:
    17,5 m²
  • Stærð þaksvala:
    25 m²
  • Byggingarár:
    2007
  • Kjallari
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:30
  • Fjarlægð frá strönd:10
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:7
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.