Glæsileg neðri hæð í fallegum spænskum bæ sem er með alla þjónustu skammt frá, San Miguel de Salinas.
serhæðin sem er 85,88m2 er með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og björtu alrými með stofu og eldhúsi. Glæsilegan garð með æðislegu útsýni sem aðgangur að sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum og græn svæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar sem skín í allt að 300 daga á ári.
Bjóðum einnig upp á 2 herbergja íbúðir í þessum glæsilega nýja íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, veitingastaðir, súpermarkaðir, almenningssamgöngur o.fl. allt í göngufæri.
Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!