Glæsileg neðri hæð í raðhúsi í skemmtilega bænum San Miguel de Salinas, fallegum spænskum bæ með mikið líf allt árið um kring.
Íbúðin sem er 45,8m2 er með 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi og björtu alrými með stofu og eldhúsi. Glæsilegur sér garður sem og aðgangur að sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum , leiksvæði fyrir börn og græn svæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar sem skín í allt að 300 daga á ári.
Bjóðum einnig upp á íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum í þessum glæsilega nýja íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!