*
*
Einbýlishús í San Miguel

Einbýlishús í San Miguel

Kr 97.289.518649.000€
Ref: V643
Einbýlishús í San Miguel - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 237,38 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 371,38 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara í rólegu úthverfi í San Miguel. Í húsinu eru 3 rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og 3 baðherbergi með gólfhita, einnig fylgir mjög rúmgóður kjallari þar sem hægt væri að útbúa tómstundaherbergi, líkamsrækt, heima bíó eða jafnvel vínkjallara. Mjög stór garður fylgir einnig, en í honum er að finna sundlaug, stóra verönd og sér bílastæði inn á lóð, einnig fylgja glæsilegar þaksvalir með frábæru útsýni yfir nærliggjandi umhverfi.

Húsið afhendist með gæða heimilistækjum og loftkælingu.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    237,38 m²
  • Stærð lóðar:
    371,38 m²
  • Garður:
    296,7 m²
  • Stærð verandar:
    35,88 m²
  • Geymslurými:
    68,75 m²
  • Stærð þaksvala:
    34,43 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Geymsla
  • Hiti í gólfi
  • Kjallari
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:30 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:7 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.