*
*
Einbýlishús á frábæru verði

Einbýlishús á frábæru verði

Kr 32.724.513218.000€
Ref: V439
Einbýlishús á frábæru verði - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 125,95 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Nýstandsett einbýlishús á 3 hæðum rétt fyrir utan líflega bæinn San Miguel de Salinas.

Húsið er tilbúið til afhendingar!

Húsið er 125,95m2 með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt óinnréttuðum kjallara þar sem hægt væri að útbúa auka svefnherbergi, tómstundarherbergi, líkamsræktaraðstöðu eða vínkjallara. Einnig fylgja eigninni heimilistæki. Húsið stendur í sjarmerandi hverfi þar sem aðgangur að sameiginlegri sundlaug fylgir með auk sér bílastæðis inn á lóð.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

 

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    125,95 m²
  • Garður:
    110 m²
  • Stærð þaksvala:
    18 m²
  • Byggingarár:
    2007
  • Geymsla
  • Kjallari
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:30 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:7 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:5 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.