Skemmtilegar íbúðir í hjarta San Miguel de Salinas, fallegum spænskum bæ með mikið líf allt árið um kring.
Íbúðin sem um ræðir er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og er 116,53m2 að stærð. Íbúðinni fylgir geymsla auk sér bílastæði í kjallara hússins. Á þaki hússins er sameiginleg sundlaugarsvæði með flottri sundlaug og mögnuðu útsýni til allra átta.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!