Þessi frábærlega vel staðsetta eign á Punta Prima strandlengjunni sem liggur á milli Torrevieja og Orihuela Costa er 63,9m2 að stærð og er með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og rúmgóðum 15,8m2 svölum. Auk þess er hún með 41,35m2 þaksvalir þaðan sem sem þú getur notið útsýnis til sjávar og yfir glæsilega sameignina, og verið með 'útistofu', 'útieldhús' eða hvað eina - sannarlega svæði sem ljúft er að njóta í góðra vina hópi þar sem enginn er nálægt nema fuglinn fljúgandi. Eigninni fylgir fylgir jafnframt einkastæði í bílakjallara sem og geymsla þar sem gott er að geyma gersemar s.s. golfsett, hjól o.fl. Íbúðakjarninn sem íbúðin er í býður upp á glæsilegt sundlaugarsvæði þar sem nægt svæði er fyrir sólbaðsunenndur að drekka í sig c-vítamínið og njóta þess augnayndis sem sameiginlega garðsvæðið er. Að ekki sé talað um strandlengjuna sem er rétt við túnfótinn, og guðdómlegt að njóta þess að rölta við bárugláfur og njóta náttúrunnar og fjölbreytts mannlífs.
Auk þessarar eignar, bjóðum við líka uppá 3 og 2 herbergja íbúðir í þessum sama íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek, veitingastaði og bari. Auk þess að vera aðeins nokkra metra frá Cala Piteras ströndinni. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, hinar þekktu verslunarmiðstöðvar "Habaneras" og La "Zenia Boulevard", frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Ef þú elskar sól og sumaryl þá ertu á réttum stað, því næsta nágrenni bíður uppá kílómetra langar strandir sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!