Perla kynnir með stolti þessa einstöku 2 herbergja íbúð í hinu vinsæla Punta Prima hverfi í Torrevieja.
Þessi 79,85m2 eign er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi (hvort um sig með hita í gólfi) auk 31,92m2 svala sem bjóða upp á ótrúlegt útsýni til sjávar en eigninni fylgir jafnframt einkastæði í bílakjallara sem og geymsla. Hún tilheyrir frábærum íbúðakjarna sem fylgir stórglæsilegt sundlaugarsvæði þar sem finna má meðal annars heitan nuddpott og glæsilega sólbaðsaðstöðu. Í þessari afgirtu íbúðarbyggð er að sjálfsögðu jafnframt mikið um græn svæði og öll sameignin mikið augnayndi. Og síðbreytileg náttúrufegurð Miðjarðarhafsins svíkur engan, en óhindrað útsýnið blasir við jafnt frá íbúðinni sem og frá sundlaugarsvæðinu sjálfu.
Auk þessarar eignar, bjóðum við líka uppá 3 herbergja íbúðir sem og íbúðir á jarðhæð með garði í þessum sama íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek, veitingastaði og bari. Auk þess að vera aðeins nokkra metra frá Cala Piteras ströndinni. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, hinar þektku verslunarmiðstöðvar "Habaneras" og La "Zenia Boulevard", frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu á svæði sem bíður uppá kílómetra langar strandir sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!