Perla kynnir með stolti þessa frábæru íbúð með garði í hinu vinsæla Punta Prima hverfi í Torrevieja.
Þessi 68,15m2 eign er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi (hvort um sig með hita í gólfi) auk 33,45m2 svalir/garður en eigninni er hægt að láta fylgja jafnframt einkastæði í bílakjallara sem og geymsla. Hún tilheyrir frábærum íbúðakjarna sem fylgir stórglæsilegt sundlaugarsvæði þar sem finna má meðal annars heitan nuddpott, líkamsrækt og glæsilega sólbaðsaðstöðu. Í þessari afgirtu íbúðarbyggð er að sjálfsögðu jafnframt mikið um græn svæði og öll sameignin mikið augnayndi.
Auk þessarar eignar, bjóðum við líka uppá þakíbúðir, tveggja hæða íbúðir sem og 2 og 3 herbergja íbúðir í þessum sama íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek, veitingastaði og bari. Auk þess að vera aðeins nokkra mínútur frá ströndinni. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, hinar þekktu verslunarmiðstöðvar "Habaneras" og La "Zenia Boulevard", frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu á svæði sem bíður uppá kílómetra langar strandir sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!