Sjarmerandi þakíbuð í Pilar de La Horadada
Glæsileg þakíbuð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum um 700 metra frá ströndinni með fallegum þaksvolum í Pilar de la Horadada, um 20 mínútum sunnar en Torrevieja. Íbúðin er í nýrri 3 hæða blokk með bílastæðakjallara og fylgir sér bílastæði með hverri íbúð. Íbúðin kemur einnig með heimilistækjum og loftkælingu.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslun, apótek, veitingastaði í miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufæri frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!