Fallegt raðhús á tveimur hæðum auk glæsilegra þaksvala með frábæru útsýni. Húsið er 87m2 með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og sér garði ásamt aðgangi að frábærum sameiginlegum garði með sundlaug og grænum svæðum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári. Eigninni fylgja einnig heimilistæki og sér bílastæði í bílakjallara.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslun, apótek, veitingastaði í miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufæri frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!