Mjög falleg og nútímaleg neðri sérhæð í bænum Pilar de la Horadada sem er rétt sunnan við Torrevieja.
Íbúðin sem er 77,35m2 að stærð er með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, björtu og rúmgóðu alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum og stofu en frá henni er gengið út í fallegan sér garð, en einnig fylgir aðgangur að sameiginlegum garði með sundlaug og sér bílastæði.
Við erum einnig með íbúðir með 3 svefnherbergjum í þessari sömu byggingu.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslun, apótek, veitingastaði í miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!