*
*
Íbúð í göngufæri við strönd

Íbúð í göngufæri við strönd

Kr 38.325.707255.000€
Ref: A435
Íbúð í göngufæri við strönd - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 67,81 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Glæsileg íbúð í nýjum og barnvænum íbúðarkjarna í Pilar de la Horadada í göngufæri við strönd.

Íbúðin sem er 67,81m2 er með 2 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum, 2 baðherbergjum og rúmgóðum svölum. Aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði með tveimur sundlaugum, þar af einni barnalaug, einnig fylgir íbúðinni sér bílastæði með í bílakjallara.

Bjóðum einnig upp á 3 herbergja íbúðir í þessum sama kjarna með garði eða án.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur s.s. matvöruverslun, apótek, heilsugæslu, skóla, veitingastaði og miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.

Þessi staðsetningar hentar mjög vel hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fínsendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

 

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til austurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    67,81 m²
  • Stærð verandar:
    19,12 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Hleðlustöð fyrir rafbíla
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:8 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:8 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:8 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.