Stórglæsilegt eins hæða einbýlishús á frábæru verði.
Húsið sem er á einni hæð er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, bjart og mjög rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu þaðan sem hægt er að ganga út í glæsilegan sér garð. Einnig stendur kaupendum til boða að bæta við kjallara, sundlaug og þaksvölum sé þess óskað.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek og veitingastaði í nærliggjandi þorpum, sem og þá ertu aðeins um 10 mínútur frá hinum fræga Las Colinas Golfvelli. Og fyrir strandunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínúta fjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!