*
*
Einbýli í Lomas de Cabo Roig

Einbýli í Lomas de Cabo Roig

Kr 67.535.993449.900€
Ref: V047
Einbýli í Lomas de Cabo Roig - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 259,63 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 217 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Hér er um að ræða einstaklega bjart og stílhreint 259,63 m2 einbýlishús með  3 svefnherbergjum, 3baðherbergjum, 59,44 m2 sólarþaki, stórum veröndum og einkabílastæði á lóð og sundlaug auk 85 m2 kjallara sem innifalin er í heildar fermetratölu hússins.  Í kjallaranum eru 2 gluggar sem að hleypa mikilli birtu inn og opna fyrir mikla möguleika með nýtingu hans, hvort sem að þig dreymir um að vera með heima líkamsrækt, útbúa þér vínkjallara, heimabíó, auka herbergi eða annað, þá ertu með fullkomna aðstöðu til þess hér.  Húsið er staðsett í afar fallegu afgirtu íbúðar hverfi, þaðan sem stutt er til allra átta.

Skammt frá er á 18 holu golfvellirnir Campoamor, Las Ramblas og Villamartin, þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis hvort sem er við að iðka golf íþróttina eða tylla sér á fallega útsýnisbari og njóta þess að hlusta á fagurlitaða páfagaukana kvaka allan ársins hring. 

 Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla eftir vatnssíkinu "el canal" sem rennur í gegnum Villamartin hverfið og milli Campoamor og Las Ramblas golfvallanna en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru.  Jafnframt er stutt að fara til annara hverfa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum, eða á farartæki s.s. á strandsvæði Cabo Roig, til La Zenia, eða til Los Dolses hverfisins.  En það má segja að ekki sé meira en 10 mín létt labb til allra þessara hverfa.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkura mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Á ekki við
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    259,63 m²
  • Stærð lóðar:
    217 m²
  • Stærð þaksvala:
    59,44 m²
  • Byggingarár:
    2020
  • Miðstöðvarkynding
  • Kjallari
  • Útigrill
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:5 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:10 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.