*
*
Vandað einbýlishús í Las Colinas

Vandað einbýlishús í Las Colinas

Kr 131.631.918875.000€
Ref: V512
Vandað einbýlishús í Las Colinas - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 140 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 1013 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Vandað og fallegt einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum á þessum frábæra stað rétt við golfvöllinn í Las Colinas. Rúmgott og bjart alrými með stofu og eldhúsi og er þaðan hægt að ganga út á stóra verönd í fallegum, stórum garði sem einnig hefur að geyma sér sundlaug og bílastæði inn á lóð.

Gæði og glæsileiki eru í hávegum höfð við hönnun þessa húss sem er byggt eftir ströngustu gæða stöðlum, eignin er einnig útbúin innbyggðu öryggiskerfi kerfi, hita í gólfum, þvotthús innan íbúðar og að auki fylgir henni loftræstikerfi.   

Þessi eign er í nálægð við klúbbhúsið og rúmgott æfingasvæðið, veitingastað, bar og SPA svo eitthvað sé nefnt.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla í Sierra de Escalona náttúruverndar svæðinu sem umkringir Las Colinas, en þar er að finna mikið náttúrulíf. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 20 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Ósnortin náttúra
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    140 m²
  • Stærð lóðar:
    1013 m²
  • Garður:
    873 m²
  • Stærð verandar:
    78 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Hiti í gólfi
  • Útigrill
  • Verönd
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:15 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:15 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.