*
*
Stórglæsilegt einbýlishús við Las Colinas

Stórglæsilegt einbýlishús við Las Colinas

Kr 353.481.7242.350.000€
Ref: V550
Stórglæsilegt einbýlishús við Las Colinas - Perla Investments
  • icon 5 Svefnherbergi
  • icon 7 Baðherbergi
  • icon 580 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 1000 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Þetta stórglæsilega einbýlishús er staðsett á hinum glæsilega golfvelli Las Colinas og einkennist af nútímalegri hönnun og einstökum stíl.

Húsið sem er 580m2 hefur að geyma 5 herbergjasvítur sem allar eru með sitt eigið baðherbergi og þar að auki eru 2 gestasalerni, skrifstofa og sjónvarpsherbergi/setustofa á neðri hæð.

Stórt og bjart opið alrými með fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, borðstofu og stofu þaðan sem útgengt er á fallega 296m2 verönd með svokallaðri “óendanlaug “ með stórbrotnu útsýni yfir golfvöllinn.

Með húsinu fylgir einnig bílskúr fyrir 2 bíla, þvottahús og yfir 50m2 geymslurými sem hægt væri að útbúa sem líkamsrækt, tómstundarherbergi, vínkjallara eða jafnvel setja þar inni sundlaug eða nuddpott.   

Las Colinas hverfið sem staðsett er suður af Alicante státar af einstöku náttúrusvæði og hefur undanfarin ár hlotið viðurkenninguna „Leading Villa Resort of Spain and Europe“ sem veitt eru af World Travel Awards. Í hjarta hverfisins er svo að finna hinn margverðlaunaða Las Colinas Golfvöll sem 5 sinnum hefur verið valinn besti golfvöllur Spánar.

Þar er einnig að finna hinn metnaðarfulla Las Colinas Golf and Country Club þar sem hægt er að njóta bæði matar og drykkja á glæsilegum veitingastöðum eða notið þess sem Las Colinas heilsuræktin hefur upp á að bjóða.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla í Sierra de Escalona náttúruverndar svæðinu sem umkringir Las Colinas, en þar er að finna mikið náttúrulíf. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða

Torrevieja spítala sem er í 20 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur
  • Bílastæði:
    Tvöfaldur bílskúr
  • Fermetra stærð eignar:
    580 m²
  • Stærð lóðar:
    1000 m²
  • Garður:
    230,20 m²
  • Stærð verandar:
    296 m²
  • Geymslurými:
    53,84 m²
  • !sup_garaje:
    36,69 m²
  • Stærð þaksvala:
    40,89 m²
  • Byggingarár:
    2023
  • Geymsla
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:51 min
  • Fjarlægð frá strönd:15 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:15 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.