*
*
Stórglæsileg íbúð á jarðhæð i Las Colinas

Stórglæsileg íbúð á jarðhæð i Las Colinas

Kr 74.456.789495.000€
Ref: A733
Stórglæsileg íbúð á jarðhæð i Las Colinas  - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 122 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Einstaklega fallegar og vandaðar íbúðir í nýrri íbúðarbyggingu við hinn glæsilega golfvöll, Las Colinas Golf.

Íbúðin sem um ræðir er 122m2 með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem hafa hita í gólfum. Rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með hágæða heimilistækjum, borðstofu og stofu,  úr stofunni er svo gengið út á 58m2 stórar svalir og 39m2 garð með fallegu útsýni yfir fallega Las Colinas Golf. Í sameigninni er sameiginleg sundlaug og svæði til að slaka á við sundlaugina.

Í öllum íbúðum er Smart Home System. 

Sér neðanjarðarbílastæði fylgir með íbúðinni og einnig geymslurými. Fyrir íbúðir á jarðhæð er valmöguleiki á að fá heitann pott, úti eldhús og markísu.

Las Colinas hverfið sem staðsett er suður af Alicante státar af einstöku náttúrusvæði og hefur undanfarin ár hlotið viðurkenninguna „Leading Villa Resort of Spain and Europe“ sem veitt eru af World Travel Awards. Í hjarta hverfisins er svo að finna hinn margverðlaunaða Las Colinas Golfvöll sem 5 sinnum hefur verið valinn besti golfvöllur Spánar.

Þar er einnig að finna hinn metnaðarfulla Las Colinas Golf and Country club þar sem hægt er að njóta bæði matar og drykkja á glæsilegum veitingastöðum eða notið þess sem Las Colinas heilsuræktin hefur upp á að bjóða.

Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla í Sierra de Escalona náttúruverndar svæðinu sem umkringir Las Colinas, en þar er að finna mikið náttúrulíf. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða

Torrevieja spítala sem er í 20 mínútna ökufjarlægð að heiman.

Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

 

 

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til norð-austurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur - Náttúra
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    122 m²
  • Garður:
    39 m²
  • Stærð verandar:
    58 m²
  • Byggingarár:
    2025
  • Lyfta
  • Verönd
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:51
  • Fjarlægð frá strönd:15
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:15
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.