*
*
Björt íbúð með á æðislegu verði

Björt íbúð með á æðislegu verði

Kr 29.256.916Húsið er Selt
Ref: A086
Björt íbúð með á æðislegu verði - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 98 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Þessi glæsilega íbúð er staðsett á mjög vinsælu svæði á Costa Blanca strandlengjunni, þ.e. á milli Villamartín og La Zenia hverfanna þaðan sem stutt er í alla þjónustu og glæsilega verslunarmiðstöðin Zenia Boulevard í þægilegri göngufjarlægð.  Héðan er jafnframt stutt í skóla, á glæsilegt íþróttasvæði Orihuela Costa, niður á Playa Flamenca þar sem laugardagsmarkaðurinn er allan ársins hring, að ekki sé talað um ströndina.

Íbúðin er með  3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 23 m2 svölum en jafnframt fylgir henni bílastæði í bílastæðakjallara.  Hún er staðsett í einstöku hverfi, og í aflokaðri íbúðarþyrpingu þar sem hugað er að hverju smáatriði, með sameiginlegu sundlauga og garðsvæði.  Í sama íbúðarkjarna eru í boði glæsilegar íbúðir með garði og penthouse íbúðir með glæsilegum þaksvolum.

Skammt frá liggur vatna síkið "El canal" sem er vinsæl gönguleið fyrir náttúru unnendur að fara um, en þar er að finna mikið fuglalíf og hægt að fara í skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir meðfram skurðinum til nærliggjandi bæja, án þess að fara út á götu og alltaf umlukin fallegri náttúru, en jafnframt er stutt að fara til annara hverfa, hvort sem er á tveimur jafnfljótum, eða á farartæki s.s. í hverfið Los Altos, La Florida og Playa Flamenca.  En það má segja að ekki sé meira en 10 mín létt labb til allra þessara hverfa.

Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkura mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. 

Stutt er jafnframt að rölta til verslunarmiðstöðvarinnar Los Dolses þar sem er að finna mikið úrval veitingastaða og bara, auk matvöruverslunarinnar  o.fl. svo eitthvað sé nefnt, eða innan við 5 mínútur.

 Ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar um þessa vel staðsettu eign!

 

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Bílastæðakjallari
  • Fermetra stærð eignar:
    98 m²
  • Stærð verandar:
    23 m²
  • Byggingarár:
    2020
  • Geymsla
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:10 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:4 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:4 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.