Glæsilegt nýtt parhús við golfvöllinn La Finca í Algorfa á suður Costa Blanca ströndinni
Húsið er 89,80m2 að stærð með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum með hita í gólfi og rúmgóðu þvottahúsi innan íbúðar. Rúmgott alrými þar sem flæðið á milli eldhúss, borðstofu og stofu er mjög gott og þaðan gengið út í glæsilegan garð með rúmgóðri verönd, sér sundlaug og bílastæði innan lóðar. Aðgangur að sameiginlegum garði fylgir einnig íbúðinni en þar er sundlaug og falleg græn svæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar í allt að 300 daga á ári.
Bjóðum uppá mikið úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.
Í næsta nágrenni við hverfið finnurðu alla nauðsynlega þjónustu í bænum Algorfa, s.s. veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. En auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn La Finca, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!