*
*
Glæsilegt nýtt einbýlishús við golfvöll

Glæsilegt nýtt einbýlishús við golfvöll

Kr 76.839.874510.000€
Ref: V533
Glæsilegt nýtt einbýlishús við golfvöll - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 4 Baðherbergi
  • icon 197,6 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 303 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Perla Investments kynnir stórglæsilegt nýtt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara á frábærum stað við golfvöllinn La Finca á Costa Blanca ströndinni. Húsið hefur að geyma 3 svefnherbergi og 5 baðherbergi, þar af eitt í kjallara. Glæsilegt og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum, borstofu og stofu. Fallegur sér garður með sundlaug, útisturtu og sér bílastæði með rafdrifnu hliði fylgir einnig eigninni. Kjallarinn er mjög rúmgóður og þar er möguleiki á að útbúa tómstundarherbergi, svefnherbergi, bíóherbergi eða jafnvel vínkjallara. 

Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera þessa eign að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.  

Í næsta nágrenni við hverfið finnurðu alla nauðsynlega þjónustu í bænum Algorfa, s.s. veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl.  En auk þess ertu í göngufæri við verslunarkjarna þar sem mikið er um veitingastaði og bari,  Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er líka skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. 

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn La Finca, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman.  Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.

Í göngufæri er að finna mikið úrval bara, kaffihúsa, veitingastaða, matvöruverslunum og apótek.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suð-austurs
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    197,6 m²
  • Stærð lóðar:
    303 m²
  • Garður:
    229,21 m²
  • Stærð verandar:
    20,69 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Kjallari
  • Verönd
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:40 min
  • Fjarlægð frá strönd:15 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.