Glæsilegar og rúmgóðar íbúðir í Guardamar del Segura með frábæru útsýni til sjávar.
Íbúðirnar eru 71,35m2 með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og björtu og rúmgóðu alrými með eldhúsi og stofu og þaðan er gengið út á svalir með frábæru útsýni til sjávar. Einnig fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegri sundlaug í aflokuðum garði með grænum svæðum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.
Guardamar del Segura er mjög skemmtilegur strandbær við Costa Blanca ströndina, en strandsvæðið í Guardamar er með þeim fallegustu við þessa strandlengju. Bærinn sjálfur bíður upp á alla nauðsynlega þjónustu s.s. spítala, apótek, matvöruverslanir og svo má að auki finna fjöldann allan af læsilegum veitingastöðum, börum og alls kyns afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
innan við 15 mínútur akstur finnurðu svo 4 golfvelli, tvær verslunarmiðstöðvar (Habaneras og Zenia Boulevard), hinn spennandi og þéttsetna miðbæ Torrevieja, tívolí, hin fallegu náttúrulegu saltvötn Torrevieja sem og hið glæsilega verndað náttúrusvæði sem liggur við sjóinn milli La Mata og Guardamar bæjarins.
Hafðu samband til að fá frekri upplýsingar um þessa frábæru eign!