*
*
Einstakt einbýlishús í fyrstu línu við golfvöll

Einstakt einbýlishús í fyrstu línu við golfvöll

Kr 239.733.9741.595.000€
Ref: V454
Einstakt einbýlishús í fyrstu línu við golfvöll - Perla Investments
  • icon 4 Svefnherbergi
  • icon 4 Baðherbergi
  • icon 209,01 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 900 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Dreymir þig um að búa í fallegu húsi á Spáni með einstöku útsýni yfir golfvöll? Þá er þetta eignin fyrir þig.

Stórglæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara við golfvöllinn Font de Llop í Alicante. Húsið er með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, í kjallara er stór bílskúr auk 82m2 rýmis þar sem tilvalið er að útbúa tómstundarherbergi, líkamsræktar aðstöðu, eða vínkjallara. Bjart og mjög rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, borðstofu og stofu þaðan sem gengið er út í glæsilegan garð með stórri útsýnislaug. Eigninni fylgja einnig tvennar þaksvalir með stórfenglegu útsýni yfir golfvöllinn og fjalllendið í kring.  

Þessi  eign stendur við golfvöllinn Font de Llop sem er stórglæsilegur 18 holu golfvöllur í Alicante, aðeins 10 mín frá Alicante flugvellinum og einungis 20 mín frá strönd. Font de Llop Resort státar af glæsilegu umhverfi en fyrir utan sjálfan golfvöllinn eru margir fallegir göngu og hjólreiða stígar. Einnig er þar að finna glæsilegt klúbbhús með fyrsta flokks veitingastað, kaffihúsi og glæsilegri veislu aðstöðu. Svæðið er vaktað með sólarhrings öryggisgæslu.

Þökk sé staðsetningu eignarinnar, þá ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í hinu sögufrægu borg Elche, en þar getur þú fundið matvöruverslanir, apótek, veitingastaði, bari, verslunarmiðstöðvar og margt fleira. En þess má geta að golfvöllurinn sem eignin tilheyrir er umkringdur vínökrum og stórbrotinni náttúru þar sem stunda má margs konar útiveru s.s. göngur og hjólreiðar í nærliggjandi fjallendi.

Í 15 mínútna fjarlægð er svo stórborg héraðsins, Alicante.  En þar getur þú fundið heimklassa veitingastaði, skemmtanalíf, kaffihús, sögulegar byggingar, verslanir, framúrskarandi sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

 

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

 

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur - Náttúra
  • Bílastæði:
    Tvöfaldur bílskúr
  • Fermetra stærð eignar:
    209,01 m²
  • Stærð lóðar:
    900 m²
  • Garður:
    736,45 m²
  • Stærð verandar:
    71 m²
  • Stærð þaksvala:
    67 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Geymsla
  • Hiti í gólfi
  • Bílskúr
  • Kjallari
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:10 min
  • Fjarlægð frá strönd:20 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.