*
*
Draumaeign við golfvöll

Draumaeign við golfvöll

Kr 90.935.475605.000€
Ref: T455
Draumaeign við golfvöll - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 3 Baðherbergi
  • icon 217,18 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 380 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Langar þig að búa á Spáni í fallegu húsi með útsýni yfir golfvöllinn? Þá er þetta fullkomin eign fyrir þig.

Stórglæsilegt 102,18m2 parhús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, glæsilegum garði með mjög stórri verönd og sér sundlaug og að auki eru 56,24m2 þaksvalir með stórfenglegu útsýni yfir golfvöllinn og 115m2 óinnréttaður kjallari. Eigninni fylgja heimilistæki og sér bílastæði á lóð.

Þessi  eign stendur við golfvöllinn Font de Llop sem er stórglæsilegur 18 holu golfvöllur í Alicante, aðeins 10 mín frá Alicante flugvellinum og einungis 20 mín frá strönd. Font de Llop Resort státar af glæsilegu umhverfi en fyrir utan sjálfan golfvöllinn eru margir fallegir göngu og hjólreiða stígar. Einnig er þar að finna glæsilegt klúbbhús með fyrsta flokks veitingastað, kaffihúsi og glæsilegri veislu aðstöðu. Svæðið er vaktað með sólarhrings öryggisgæslu.

Þökk sé staðsetningu eignarinnar, þá ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í hina sögufrægu borg Elche, en þar getur þú fundið matvöruverslanir, apótek, veitingastaði, bari, verslunarmiðstöðvar og margt fleira. En þess má geta að golfvöllurinn sem eignin tilheyrir er umkringdur vínökrum og stórbrotinni náttúru þar sem stunda má margs konar útiveru s.s. göngur og hjólreiðar í nærliggjandi fjallendi.

Í 15 mínútna fjarlægð er svo stórborg héraðsins, Alicante.  En þar getur þú fundið heimklassa veitingastaði, skemmtanalíf, kaffihús, sögulegar byggingar, verslanir, framúrskarandi sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

 

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

 

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur - Náttúra
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    217,18 m²
  • Stærð lóðar:
    380 m²
  • Garður:
    265,7 m²
  • Stærð verandar:
    95,91 m²
  • Stærð þaksvala:
    56,24 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Hiti í gólfi
  • Kjallari
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:10
  • Fjarlægð frá strönd:20
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.