*
*
Bjart og fallegt parhús við golfvöll

Bjart og fallegt parhús við golfvöll

Kr 55.910.444372.000€
Ref: T449
Bjart og fallegt parhús við golfvöll - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 71,55 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 340 m² Stærð lóðar
  • icon Einka
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Langar þig að búa á Spáni í fallegu húsi með útsýni yfir golfvöllinn? Þá er þetta fullkomin eign fyrir þig.

Stórglæsilegt parhús á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum við golf völlinn Font de Llop í Alicante. Húsið sem er 71,55m2 að stærð er með eldhús og stofu í mjög björtu og opnu alrými þaðan sem gengið er út í glæsilegan garð með frábærri sundlaug og sér bílastæði á lóð. Í húsinu eru hitalagnir í öllum gólfum og fylgja heimilistæki með.

Þessi  eign stendur við golfvöllinn Font de Llop sem er stórglæsilegur 18 holu golfvöllur í Alicante, aðeins 10 mín frá Alicante flugvellinum og einungis 20 mín frá strönd. Font de Llop Resort státar af glæsilegu umhverfi en fyrir utan sjálfan golfvöllinn eru margir fallegir göngu og hjólreiða stígar. Einnig er þar að finna glæsilegt klúbbhús með fyrsta flokks veitingastað, kaffihúsi og glæsilegri veislu aðstöðu. Svæðið er vaktað með sólarhrings öryggisgæslu.

Þökk sé staðsetningu eignarinnar, þá ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í hin sögufræga borg Elche, en þar getur þú fundið matvöruverslanir, apótek, veitingastaði, bari, verslunarmiðstöðvar og margt fleira. En þess má geta að golfvöllurinn sem eignin tilheyrir er umkringdur vínökrum og stórbrotinni náttúru þar sem stunda má margs konar útiveru s.s. göngur og hjólreiðar í nærliggjandi fjallendi.

Í 15 mínútna fjarlægð er svo stórborg héraðsins, Alicante.  En þar getur þú fundið heimklassa veitingastaði, skemmtanalíf, kaffihús, sögulegar byggingar, verslanir, framúrskarandi sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

 Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!

  • Sundlaug:
    Einka
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Golfvöllur - Náttúra
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    71,55 m²
  • Stærð lóðar:
    340 m²
  • Garður:
    212,2 m²
  • Stærð verandar:
    33,2 m²
  • Stærð þaksvala:
    59,95 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Geymsla
  • Hiti í gólfi
  • Verönd
  • Þaksvalir
  • Heimilistæki
  • Loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:10 min
  • Fjarlægð frá strönd:20 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:10 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:2 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.