Þetta glæsilega parhús er staðsett á frábærum stað í bænum Ciudad Quesada og einungis 6 mínútum frá næsta Golf velli!
Húsið er 93,30m2 að stærð með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Rúmgott og bjart opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu en þaðan er hægt að ganga út á glæsilega verönd með 82,80m2 stórum garði, 18,20m2 sundlaug og sér bílastæði innan lóðar. Einnig eru 32,30 þaksvalir með æðislegu útsýni yfir náttúruna
Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s GoKart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.
Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!