*
*
Glæsilegt einbýlishús í líflega bænum Ciudad Quesada

Glæsilegt einbýlishús í líflega bænum Ciudad Quesada

Kr 55.526.594369.900€
Ref: V339
Glæsilegt einbýlishús í líflega bænum Ciudad Quesada  - Perla Investments
  • icon 3 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 170 m² Fermetra stærð eignar
  • icon 204 m² Stærð lóðar
  • icon Val
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Nýtt og glæsilegt einbýlishús byggt í miðjarðarhafsstíl í Ciudad Quesada. Þetta nútímalega en jafnframt hefðbundna miðjarðarhafsheimili er á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk óinnréttaðs 52 m2 kjallara þar sem hægt væri að bæta við svefnherbergi og baðherbergi eða jafnvel nýta það sem tómstundarherbergi eða vínkjallara.  Glæsilegar svalir eru á efri hæð og í fallegum garðinum sem er í svokölluðum miðjarðarhafsstíl er að finna rúmgóða verönd og sér bílastæði innan lóðar. Fyrir þá sem þess óska er svo hægt að bæta sundlaug og þaksvölum við.

Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s GoKart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu. 

Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Val
  • Garður:
  • Eignin snýr:
    Á ekki við
  • Útsýni:
    Yfir sundlaugarsvæði og garð
  • Bílastæði:
    Einkabílastæði á lóð
  • Fermetra stærð eignar:
    170 m²
  • Stærð lóðar:
    204 m²
  • Garður:
    159 m²
  • Byggingarár:
    2024
  • Sólarorka
  • Kjallari
  • Verönd
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:30 min
  • Fjarlægð frá strönd:20 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:10 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.