Perla Investments kynnir glæsileg einbýlishús í bænum Ciudad Quesada, á Costa Blanca ströndinni, sunnan við Alicante.
Húsið sem er á tveimur hæðum er staðsett í nýjum einbýlishúsakjarna og er 109m2 að stærð. Á aðalhæð hússins er 1 svefnherbergi, eitt baðherbergi og stórt og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu en þaðan er gengið út í glæsinlegan garð með sundlaug, útisturtu og sér bílastæði innan lóðar. Á efri hæðinni eru svo 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, einnig fylgir eigninni glæsilegar rúmgóðar þaksvalir. Möguleiki á að bæta við kjallara stendur einnig til boða.
Einnig stendur kaupendum til boða að breyta skipulagi eignarinnar þannig að á efri hæð verði ein stór hjónasvíta með stóru fataherbergi og einu baðherbergi.
Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s GoKart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.
Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!