Þetta einstaklega glæsilega raðhús er að finna í hinum skemmtilega bæ Bigastro .
Eignin er 146,41 m2 með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, rúmgóðum svölum, stórum bílskúr og þaksvölum. Eigninni fylgja raftæki auk þess sem öll ljós að utan og innan eru innifalin.
Og er hún í einstöku hágæða íbúðahverfi þar sem öllum eignum fylgja aðgangur að glæstu sameiginlegu sundlaugarsvæði með grónum garði, þar sem svo sannarlega er hægt að njóta.
Stutt er í alla þjónustu og golfvellir, verslunarmiðstöðvar og mikið úrval veitingastaða í næsta nágrenni - að því ógleymdu að þú ert í göngufæri frá aðalgötu Bigastro þar sem hægt er að finna hugguleg kaffi og veitingarhús í ekta spænskum bæ rétt við Miðjarðarhafið.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!