Þetta glæsilega tveggja hæða einbýlishús er staðsett í hinum hefðbundna Spænska bæ Benijófar, u.þ.b. 15 mín keyrsla frá Torrevieja.
Húsið sem er 133,42m2 er með 3 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 3 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu en þaðan er gengið út í fallegan stóran garð þar sem léttilega væri hægt að bæta við sér sundlaug, úr garðinum er svo hægt að ganga út í glæsilegan sameiginlegan garð með barnalaug, annarri stærri sundlaug, nuddpotti og grænum svæðum þar sem kjörið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári. Einnig stendur kaupendum til boða að bæta við þaksvölum gegn vægu gjaldi sé þess óskað.
Einstaklega vel staðsett eign þar sem öll nauðsynleg þjónusta er í göngufæri svo sem, veitingastaðir, bankar, apótek, heilsugæsla, barir og skóli, sem gerir sem gerir þetta að fullkomnum stað til að finna nýtt heimili á Spáni hvort sem er til lengri eða skemmri tíma. Einnig er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.
Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 30 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!