Nýtt og glæsilegt einbýlishús í úthverfi Benijófar, skemmtilegum hefðbundnum Spænskum bæ á suður Costa Blanca ströndinni.
Þetta nútímalega en jafnframt hefðbundna miðjarðarhafsheimili er á tveimur hæðum og hannað þannig að öll rými nýtist sem best. 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi eru í húsinu, og glæsilegar svalir á efri hæð og mjög rúmgóð verönd á neðri hæð. Garðurinn sem er í svokölluðum miðjarðahafs stíl hefur að geyma glæsta sundlaug og bílastæði innan lóðar. Fyrir þá sem þess óska er svo hægt að bæta þaksvölum við.
Stutt er í alla þjónustu svo sem matvöruverslanir, apótek, læknaþjónustu auk margra afþreyingarsvæða og má þar nefna, nokkra golfvelli, verslunarmiðstöðvar og mikið úrval veitingastaða í næsta nágrenni - að því ógleymdu að þú ert í göngufæri frá aðalgötu Benijófar þar sem hægt er að finna hugguleg kaffi og veitingarhús í ekta spænskum bæ rétt við Miðjarðarhafið.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!