Perla kynnir með stolti þessa frábæru þakíbúð sem er að finna í bænum Villajoyosa, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norður strönd Costa Blanca. Bærinn hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar sem óviðjafnanlegt er að rölta um gamla bæinn, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Þessi 95,72m2 eign er með 3 svefnherbergjunum og 3 baðherbergjum, 17,33m2 svalir, auk 52,67m2 þaksvala með einstöku útsýni til sjávar, en jafnframt fylgir einkastæði í bílakjallara.
Eignin er byggð samkvæmt ströngustu gæða og umhverfis kröfum Evrópu. Og tilheyrir algjörlega einstökum íbúðakjarna sem fylgir stórglæsilegt sundlaugarsvæði þar sem finna má meðal annars heitan pott, líkamsrækt og glæsilega sólbaðsaðstöðu. Í þessari afgirtu íbúðarbyggð er að sjálfsögðu jafnframt mikið um græn svæði og öll sameignin mikið augnayndi.
Þessi bjarta og stílhreina eign er staðsett í einungis nokkurra metra fjarlægð frá ströndinni.
Svæðið tengist nærliggjandi borgum einstaklega vel, en þaðan liggja hraðbrautir beint til t.d. Benidorm borgar, Alicante, Murcia og fallegra stranda Murcia og Alicante héraða. Þrátt fyrir að tilheyra fallega bænum Villajoyosa er örstutt að skella sér til Benidorm, borgarinnar sem aldrei sefur og njóta þeirra fjölbreyttu afþreyingar sem þar er að finna.
Ef að þig dreymir um að búa við Miðjarðarhafið, í nútímalegri nýbyggingu með ströndina við túnfótinn, þá er þetta sannarlega eign fyrir þig!
Bjóðum líka uppá mikið úrval af 2 og 3 herbergja íbúða í þessari sömu íbúðarþyrpingu. Þessi eign er frábærlega staðsett til hvort sem er, langtíma eða skammtíma dvalar.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun.