*
*
Neðri sérhæð með stórri verönd

Neðri sérhæð með stórri verönd

Kr 57.150.818379.900€
Ref: B675
Neðri sérhæð með stórri verönd - Perla Investments
  • icon 2 Svefnherbergi
  • icon 2 Baðherbergi
  • icon 90 m² Fermetra stærð eignar
  • icon m² Stærð lóðar
  • icon Í sameign
  • Orku vottorð í vinnslu
Lýsing eignar:

Einstaklega falleg og björt neðri sérhæð í Finestrat með útsýni til sjávar.

Íbúðin er 90m2 að stærð með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og rúmgóðu alrými með eldhúsi og stofu þaðan sem gengið er út á mjög stóra verönd sem snýr í suður og með frábæru útsýni.

Aðgangur að stórglæsilegum sameiginlegum garði með sundlaug, líkamsrækt og grænum svæðum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.

Glæsileg eign með töfrandi útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.

Bjóðum viðskiptavinum okkar uppá úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.

Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.

Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.  

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

  • Sundlaug:
    Í sameign
  • Garður:
    Í sameign
  • Eignin snýr:
    til suðurs
  • Útsýni:
    Sjávarútsýni
  • Bílastæði:
    N/A
  • Fermetra stærð eignar:
    90 m²
  • Stærð verandar:
    100 m²
  • Byggingarár:
    2025
  • Verönd
  • Innbyggð loftkæling
Áhugi á skoÐunarferÐ
Bæir / Hverfi
  • Fjarlægð frá flugvelli:35 min
  • Fjarlægð frá strönd:9 min
  • Fjarlægð frá bæjarkjarna:5 min
  • Fjarlægð frá næsta golfvelli:7 min

Lánareiknir

{{formatAsCurrency(totalCostOfMortgage)}}
{{formatAsCurrency(interestPayed)}}
{{formatAsCurrency(payment, 2)}}

Afborganir láns

{{ index }}
* Afborganir af höfuðstól á ári
Ár: {{ graphSelection.year }}
Höfuðstóll: {{ graphSelection.principal }}
Eftirstöðvar: {{ graphSelection.principalPercent }}
Estoy de acuerdo

Utilizamos cookies propias y de terceros para realizar análisis de uso y de medición de nuestra web para mejorar nuestros servicios. Si continua navegando, consideramos que acepta su uso. Para obtener más información haga click aquí.